Einkakennsla
Einstaklingsmiðuð kennsla eins og þú vilt hafa hana
Fyrir hverja?
Margir velja að vera eingöngu í einkakennslu. Þá gefst góður tími til að spyrja, spjalla, fá endurgjöf og fara yfir á þínum hraða. Í einkakennslu færðu fulla athygli kennarans allan tímann. Til þess að hámarka árangur er mælt með að taka 3-10 tíma.
Hvernig fer kennsla fram?
- Við byrjum á því að bóka stað og stund
- Tökum stutta upphitun, teygjur og sláum 5-10 létt högg
- Þarfagreining
- Videogreining og lausnir ræddar
- Lausnir æfðar
Verðskrá
- 1x 30 mín. tími – 8.000 kr. fyrir 1
- 1×45 mín. tími – 12.000 kr. fyrir 2
- Spilakennsla 9 holur – fá tilboð
Ath. boltar eru ekki innifaldir í verði.
Staðsetning
Kennsla fer fram í Hraunkoti, æfingasvæði Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði. Aðstaðan er eins og best verður á kosið, á svæðinu er æfingaskýli með 20 básum, stór púttflöt og góð aðstaða til þess að æfa stutta spilið. Kort af staðsetningunni má sjá hér.
Hafðu samband
Hafðu samband og í sameiningu finnum við kennslufyrirkomulagið sem þér hentar.
Kennslupakkar
Kennslu pakkar eru í boði fyrir þá sem eru í tímum eingöngu fyrir kl. 15:00, hafið samband og fáið tilboð.