karen_7722-225x300 (1)

Vetrarfrí á Villaitana

Villaitana 21.-28. febrúar 2018

 

 

Komdu með í vetrarfrí og njóttu þess að spila golf og skemmta þér í frábæru umhverfi Meliá Villaitana hótelsins. Við erum rétt upp af Benidorm eða um 40 mínútur frá Alicante. Þar eru tveir ólíkir 18 holu golfvellir og flott æfingaaðstaða til að æfa alla þætti golfleiksins. 

Hótelið sem líkist miðjarðarhafsþorpi býður upp á nóg að gera og skoða á kvöldin og ekki mikið mál að bregða sér í bæjarferð. Á hótelinu eru sex veitingastaðir og bar með skemmtidagskrá svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. 

 

Í boði er ótakmarkað golf en mögulegir hringir eftir hádegi eru alltaf háðir umferð á völlunum hverju sinni. Daglega er bókaður rástími fyrir hópinn ýmist á Levante eða Poniente vellinum. Fararstjóri sér um að raða í ráshópa. 


Verð:
Tvíbýli m/hálfu fæði, 174.790 kr.
Einbýli m/hálfu fæði, 199.140 kr.

 

Innifalið í ferðinni er flug með Norwegian air til Alicante, 20 kg taska báðar leiðir + golfsett, gisting á hóteli með morgunmat og kvöldmat í 7 nætur, ótakmarkað golf alla dagana, akstur til og frá flugvelli, golfkerrur fyrir Levante og golfbílar fylgja á Poniente og íslensk fararstjórn. 

 

 Staðfestingargjald í þessari ferð er 50.000 þúsund krónur af heildarverði ferðar.  Eftirstöðvar ferðar þarf að greiða til ferðaskrifstofu 8 vikum fyrir brottför. Ef styttra er í ferð en 8 vikur þá þarf að greiða ferð að fullu við bókun.

  Allar nánari upplýsingar má finna hér. 


Heyrið í mér ef þið hafið áhuga og viljið frekari upplýsingar, GSM 695-6890 eða karen@karensaevars.is

 

Þið getið líka haft  samband við ferðaskrifstofuna í síma 471-2000