karen_7722-225x300 (1)

Kvennaferð Karenar

Villaitana 30. apríl - 7. maí 2019.

 

Áttu vinkonu sem er alltaf á leiðinni að byrja? Þá er þetta ferðin fyrir ykkur. Vanar og óvanar koma saman og skemmta sér í frábæru umhverfi Meliá Villaitana hótelsins. Við erum rétt upp af Benidorm eða um 40 mínútur frá Alicante. Þar eru tveir ólíkir 18 holu golfvellir og flott æfingaaðstaða til að æfa alla þætti golfleiksins. 

Hótelið sem líkist miðjarðarhafsþorpi býður upp á nóg að gera og skoða á kvöldin og ekki mikið mál að bregða sér í bæjarferð. Á hótelinu eru sex veitingarstaðir og bar með skemmtidagskrá svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. 

Hér geta þær sem eru vanar og þær sem eru að byrja komið saman og notið þessa að vera í golfi og skemmt sér saman.

Þær sem eru vanar spila ótakmarkað golf.

 

Þær sem eru óvanar koma í golfskólann hjá mér í 3 klst. á dag í sex  og geta farið út á völl fjóra daga seinnipart. 

Verð:
Fyrir þær sem spila
Tvíbýli m/hálft fæði, 219.900 kr.
Einbýli m/hálft fæði, 259.900 kr.


Innifalið í ferðinni er flug með WOWair til Alicante, 20 kg taska báðar leiðir + golftaska, gisting á hóteli með morgunmat og kvöldmat í 7 nætur, ótakmarkað golf alla dagana, akstur til og frá flugvelli, golfbíll 18 holur per dag og íslensk fararstjórn. 

 Allar nánari upplýsingar má finna hér.

Heyrið í mér ef þið hafið áhuga og viljið upplýsingar til að borga staðfestingargjald, GSM 695-6890 eða karen@karensaevars.is