Kennslupakkar

Litli pakki

Þessi pakki er flottur fyrir kylfinga sem vilja fara í kennslu endrum og eins. Gæti hentað þeim sem eru búnir að spila í mörg ár en vilja fá tækifæri til þess að fríska upp á sveifluna og fá góð ráð. Pakkinn inniheldur 5 staka 30 mín. tíma að andvirði 35.000 kr. 

 

Verð: 28.000 kr. (15.000 kr. per mann ef tveir koma saman).

Kaupa Litla Pakkann

Stóri pakki

Þessi pakki er fyrir þá sem ekki vilja vera í hóp en vilja æfa vel yfir vetrartímann. Við myndum sveifluna í 2-3 skipti yfir veturinn til að sjá breytingar, förum í vipp, pitch og pútt. Fyrir þá sem ætla að æfa á milli tíma er lítið mál að fá æfingaplan sem hentar þeim breytingum sem verið er að vinna í. Pakkinn inniheldur 12 staka 30 mínútna tíma að andvirði 84.000 kr.

  

Verð: 66.500 kr. (35.000 kr. per mann ef tveir koma saman).

Kaupa Stóra Pakkann

Góði pakki

Þessi pakki hentar þeim sem þurfa að fara í breytingar en þær taka tíma og gott er að hafa eftirlit svo ekki sé alltaf verið að fara úr A í Ö. Við eigum það til að ýkja það sem við æfum og þá þarf að laga tilbaka. Pakkinn er bæði fyrir byrjendur sem lengra komna og inniheldur 8 staka 30 mín. tíma að andvirði 56.000 kr. 

 

Verð: 45.5000 kr. (24.000 kr. per mann ef tveir koma saman).

Kaupa góða pakkann